Salmos 76

Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ (ISL)

3 Bústaður hans er í Jerúsalem. Hann situr á Síonfjalli.

4 Þar sundurbraut hann vopn óvina okkar.

5 Öll háreist fjöll blikna í ljóma dýrðar hans!

6 Úrvalslið óvinanna er gjörsigrað! Þeir liggja flatir, sofnaðir svefninum langa. Enginn þeirra getur framar lyft hendi.

7 Þegar þú, Guð Jakobs, hastaðir á þá, féllu bæði hestar og riddarar.

8 Ekki er að undra þótt menn óttist þig! Hver fær staðist reiði Guðs?!

9 Þegar þú birtir þeim dóminn frá himnum, þá nötraði jörðin og þagnaði fyrir þér.

10 Þú stígur fram til að refsa illgjörðamönnunum, en verndar hina auðmjúku.

11 Þegar við sjáum heimsku og reiði mannanna, þá skiljum við enn betur hve dýrð þín er mikil.

12 Efnið heitin sem þið gáfuð Drottni, Guði ykkar. Allir sem umhverfis hann eru færa honum gjafir. Þeir nálgast hann með óttablandinni virðingu.

13 Hann er sá sem lægir ofstopa höfðingjanna og kemur konungum jarðarinnar á kné!

Ler em outra tradução

Comparar lado a lado

Estude este capítulo no WhatsApp

Peça à IA da Bíblia Fala para explicar Salmos 76, comparar traduções ou montar um estudo — tudo direto pelo WhatsApp.