Salmos 60

Icelandic: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og SálmarnirTM (New Testament+) (ISL_BIB)

3 Þú Guð, hefur útskúfað okkur og brotið niður varnirnar. Þú hefur reiðst okkur og tvístrað. Drottinn sýndu aftur miskunn þína.

4 Þú lést landið skjálfa, sprungur opnuðust. Drottinn læknaðu það og græddu sárin.

5 Þú lést lýð þinn kenna á hörðu, við reikuðum eins og drukknir menn.

6 En nú hefur þú reist okkur herfána! Þangað stefnum við allir sem elskum þig.

7 Réttu út þína sterku hönd og frelsaðu okkur! Bjargaðu ástvinum þínum.

8 Guð hefur heitið hjálp. Hann hefur svarið það við heilagleika sinn! Er að undra þótt ég sé glaður?! „Síkem, Súkkót, Gíleað, Manasse – allt er þetta mitt,“ segir hann. „Júda gefur konung og Efraím varðmenn.

10 Móab er þjónn minn og Edóm þræll. Og yfir Filisteu æpi ég siguróp!“

11 Hver fer með til Edóms, inn í víggirtar borgir hans?

12 Guð! Hann sem áður útskúfaði og yfirgaf hersveitir okkar!

13 Drottinn, styð okkur gegn óvinunum, því að ekki hjálpa menn.

14 Með Guðs hjálp vinnum við stórvirki, hann mun fótum troða óvinina.

Ler em outra tradução

Comparar lado a lado

Estude este capítulo no WhatsApp

Peça à IA da Bíblia Fala para explicar Salmos 60, comparar traduções ou montar um estudo — tudo direto pelo WhatsApp.