Salmos 47

Icelandic: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og SálmarnirTM (New Testament+) (ISL_BIB)

1 Komið allar þjóðir! Klappið saman höndum af gleði! Hrópið af fögnuði fyrir Guði!

3 Drottinn er æðri öllum guðum. Hann er ógurlegur. Honum verður ekki með orðum lýst. Hann er konungur til endimarka jarðarinnar.

4 Hann hefur beygt þjóðir undir sig

5 og valið úr yndislegt land og gefið okkur, þjóð sinni, Ísrael.

6 Guð er stiginn upp með miklu hrópi og hvellum lúðurhljómi.

7 Lofsyngið Guði, konungi okkar. Já, syngið lofgjörðarsöng fyrir konunginn, konung allrar jarðarinnar. Lofsyngið Guði!

9 Hann ríkir yfir þjóðunum. Hann situr á hásæti sínu.

10 Leiðtogar heimsins koma og taka undir lofgjörðina með lýð Guðs Abrahams. Skjaldarmerki þjóðanna eru sigurtákn hans. Hann er mjög upphafinn. Hann er konungur alls heimsins.

Ler em outra tradução

Comparar lado a lado

Estude este capítulo no WhatsApp

Peça à IA da Bíblia Fala para explicar Salmos 47, comparar traduções ou montar um estudo — tudo direto pelo WhatsApp.