Salmos 20

Icelandic: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og SálmarnirTM (New Testament+) (ISL_BIB)

1 Drottinn sé með þér og bænheyri þig á degi neyðarinnar! Guð Jakobs frelsi þig frá allri ógæfu.

3 Hann sendi þér hjálp frá helgidómi sínum, styðji þig frá Síon.

4 Hann minnist með gleði gjafa þinna og brennifórna.

5 Hann veiti þér það sem hjarta þitt þráir og láti öll þín áform ná fram að ganga.

6 Þegar við fréttum um sigur þinn, munum við hrópa fagnaðaróp og veifa fánanum Guði til dýrðar, því að mikla hluti hefur hann gert fyrir þig. Hann veiti svör við öllum þínum bænum!

7 Guð blessi konunginn! – Já, það mun hann vissulega gera! í himinhæðum heyrir hann bæn mína og veitir mér mikinn sigur.

8 Hinir stæra sig af herstyrk og vopnavaldi, en við af Drottni, Guði.

9 Þjóðir þessar munu hrasa og farast, en við rísa og standa traustum fótum.

10 Drottinn, sendu konungi okkar sigur! Drottinn, heyr þú bænir okkar.

Ler em outra tradução

Comparar lado a lado

Estude este capítulo no WhatsApp

Peça à IA da Bíblia Fala para explicar Salmos 20, comparar traduções ou montar um estudo — tudo direto pelo WhatsApp.