1 Coríntios 14

Icelandic: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og SálmarnirTM (New Testament+) (ISL_BIB) vs ARA

Sair da comparação
ARA Almeida Revista e Atualizada 1993
1 Keppið eftir kærleikanum og sækist eftir gjöfum og hæfileikum heilags anda, sér í lagi spádómsgjöfinni, en hún gerir okkur kleift að flytja öðrum boðskap og skilaboð frá Guði.
1 Segui o amor e procurai, com zelo, os dons espirituais, mas principalmente que profetizeis.
2 Hafir þú hlotið þá náðargjöf að tala tungum – tala orð sem heilagur andi leggur þér í munn – þá talar þú við Guð en ekki menn, því þeir munu ekkert skilja. Þú talar í krafti andans, en það er öðrum óskiljanlegt og leyndardómsfullt.
2 Pois quem fala em outra língua não fala a homens, senão a Deus, visto que ninguém o entende, e em espírito fala mistérios.
3 En sá sem spáir – það er flytur boðskap frá Drottni – hjálpar öðrum að vaxa í trúnni á Guð, hann uppörvar þá og huggar.
3 Mas o que profetiza fala aos homens, edificando, exortando e consolando.
4 Sá sem talar tungum, hjálpar sjálfum sér til andlegs þroska, en sá sem flytur orð Guðs, spáir, hjálpar öllum söfnuðinum til að vaxa að helgun og gleði trúarinnar.
4 O que fala em outra língua a si mesmo se edifica, mas o que profetiza edifica a igreja.
5 Ég vildi óska að þið gætuð öll talað tungum, þó vildi ég enn frekar að þið gætuð spáð, því að það er meiri og gagnlegri hæfileiki en að tala tungum – nema ef þið getið túlkað það fyrir öðrum, til að söfnuðurinn hafi gagn og fræðslu af.
5 Eu quisera que vós todos falásseis em outras línguas; muito mais, porém, que profetizásseis; pois quem profetiza é superior ao que fala em outras línguas, salvo se as interpretar, para que a igreja receba edificação.
6 Kæru vinir, ef ég kæmi til ykkar og talaði tungumál sem þið skilduð ekki – hvaða gagn væri ykkur að því? Það sem kemur ykkur að raunverulegu gagni er að ég greini ykkur skilmerkilega frá því sem Guð hefur opinberað mér. Segi ykkur frá því sem ég þekki og líka því sem á eftir að gerast, hlutum sem verða ykkur til leiðbeiningar í trúnni.
6 Agora, porém, irmãos, se eu for ter convosco falando em outras línguas, em que vos aproveitarei, se vos não falar por meio de revelação, ou de ciência, ou de profecia, ou de doutrina?
7 Ég ætla að taka dæmi: Ef dauðir hlutir eins og flauta eða harpa gefa frá sér óskýran eða falskan tón, hver þekkir þá lagið sem leikið er?
7 É assim que instrumentos inanimados, como a flauta ou a cítara, quando emitem sons, se não os derem bem distintos, como se reconhecerá o que se toca na flauta ou cítara?
8 Sama er að segja um herlúðurinn. Sé blásið rangt í hann, þá vita hermennirnir ekki hvort verið sé að kalla þá til orustu.
8 Pois também se a trombeta der som incerto, quem se preparará para a batalha?
9 Eins er ef þú talar við mann á máli sem hann skilur ekki, hann veit ekki hvað þú ert að segja. Þú gætir þá alveg eins talað út í bláinn!
9 Assim, vós, se, com a língua, não disserdes palavra compreensível, como se entenderá o que dizeis? Porque estareis como se falásseis ao ar.
10 Öll tungumál sem menn tala í heiminum eru gagnleg þeim sem þau skilja,
10 Há, sem dúvida, muitos tipos de vozes no mundo; nenhum deles, contudo, sem sentido.
11 en þeim sem ekki skilur, eru þau algjörlega marklaus. Sá sem talaði við mig á slíku máli, væri jafn ókunnugur eftir sem áður.
11 Se eu, pois, ignorar a significação da voz, serei estrangeiro para aquele que fala; e ele, estrangeiro para mim.
12 Fyrst þið sækist eftir gjöfum heilags anda, biðjið hann þá um þá mikilvægustu – þá sem getur orðið kirkjunni í heild að sem mestu gagni.
12 Assim, também vós, visto que desejais dons espirituais, procurai progredir, para a edificação da igreja.
13 Sá sem hefur hæfileika til að tala tungum, ætti líka að biðja um hæfileika til að túlka það sem hann hefur sagt, til þess að hann geti útskýrt það fyrir fólki, vel og greinilega.
13 Pelo que, o que fala em outra língua deve orar para que a possa interpretar.
14 Ef ég bið í tungum, þá biður andi minn, en sjálfur skil ég ekki hvað ég segi.
14 Porque, se eu orar em outra língua, o meu espírito ora de fato, mas a minha mente fica infrutífera.
15 Hvað á ég þá að gera? Hvort tveggja. Ég vil biðja í tungum og líka á venjulegu máli, sem allir skilja. Ég vil syngja í tungum, en líka á venjulegu máli, svo ég geti skilið lofgjörð þá sem ég flyt.
15 Que farei, pois? Orarei com o espírito, mas também orarei com a mente; cantarei com o espírito, mas também cantarei com a mente.
16 Því ef þú aðeins lofar og þakkar Guði í andanum og talar tungum, hvernig geta þá þeir, sem ekki skilja þig, tekið þátt í lofgjörðinni? Hvernig geta þeir tekið undir þakkargjörð þína ef þeir vita ekki hvað þú ert að segja?
16 E, se tu bendisseres apenas em espírito, como dirá o indouto o amém depois da tua ação de graças? Visto que não entende o que dizes;
17 Þú myndir vissulega þakka afar fallega, en þeir sem heyra njóta þess ekki.
17 porque tu, de fato, dás bem as graças, mas o outro não é edificado.
18 Ég er þakklátur Guði fyrir að í einrúmi tala ég tungum meira en þið öll.
18 Dou graças a Deus, porque falo em outras línguas mais do que todos vós.
19 Í guðsþjónustu vil ég þó frekar segja fimm orð sem allir skilja og verða til gagns, en tíu þúsund á óskiljanlegu máli.
19 Contudo, prefiro falar na igreja cinco palavras com o meu entendimento, para instruir outros, a falar dez mil palavras em outra língua.
20 Kæru vinir, verið ekki barnaleg í skilningi ykkar á þessum hlutum. Verið sem saklaus börn þegar ráðið er illráðum, en fullþroska að dómgreind í þessum málum.
20 Irmãos, não sejais meninos no juízo; na malícia, sim, sede crianças; quanto ao juízo, sede homens amadurecidos.
21 Í Biblíunni er sagt að Guð muni senda þjóð sinni útlenda menn, sem tala óskiljanleg mál, en samt muni þjóð hans ekki hlusta.
21 Na lei está escrito: Falarei a este povo por homens de outras línguas e por lábios de outros povos, e nem assim me ouvirão, diz o Senhor.
22 Af þessu sjáið þið að tungutalið er tákn þeim sem ekki trúa – þeir skilja ekki það sem Guðs er. Spádómsgáfan er hins vegar það sem kristnir menn þurfa sérstaklega á að halda. Hún er þeirra tákn. Hún opinberar þeim vilja Guðs.
22 De sorte que as línguas constituem um sinal não para os crentes, mas para os incrédulos; mas a profecia não é para os incrédulos, e sim para os que creem.
23 Segjum að einhver, sem ekki trúir eða þekkir þessa hæfileika sem Guðs andi gefur, kæmi til guðsþjónustu og heyrði ykkur öll tala tungum, þá myndi hann líklega halda að þið væruð gengin af vitinu!
23 Se, pois, toda a igreja se reunir no mesmo lugar, e todos se puserem a falar em outras línguas, no caso de entrarem indoutos ou incrédulos, não dirão, porventura, que estais loucos?
24 En ef allir flyttu opinberun frá Guði – spádómsorð og einhver sem ekki trúir eða fáfróður kæmi þangað inn, þá mundi boðskapurinn sannfæra hann um synd hans og vekja samvisku hans.
24 Porém, se todos profetizarem, e entrar algum incrédulo ou indouto, é ele por todos convencido e por todos julgado;
25 Hann mundi finna augu Guðs rannsaka hjarta sitt, falla á kné og vegsama Guð og segja, að Guð væri sannarlega á meðal ykkar.
25 tornam-se-lhe manifestos os segredos do coração, e, assim, prostrando-se com a face em terra, adorará a Deus, testemunhando que Deus está, de fato, no meio de vós.
26 Jæja, vinir mínir, við skulum þá draga saman þetta sem ég hef verið að segja. Þegar þið komið saman þá mun einhver syngja, annar kenna, einhver segja frá hlutum sem Guð hefur opinberað honum, annar mun tala tungum og einn annar túlka tungutalið. Munið að allt sem þið gerið verður að vera til uppbyggingar í trúnni.
26 Que fazer, pois, irmãos? Quando vos reunis, um tem salmo, outro, doutrina, este traz revelação, aquele, outra língua, e ainda outro, interpretação. Seja tudo feito para edificação.
27 Ekki ættu fleiri en tveir eða þrír að tala tungum, og þá aðeins einn í einu, og einhver verður að vera þar til að túlka.
27 No caso de alguém falar em outra língua, que não sejam mais do que dois ou quando muito três, e isto sucessivamente, e haja quem interprete.
28 Sé enginn viðstaddur sem getur túlkað tungutalið, mega þeir sem tala tungum ekki gera það upphátt, heldur skulu þeir þá aðeins tala lágt við sjálfa sig og Guð.
28 Mas, não havendo intérprete, fique calado na igreja, falando consigo mesmo e com Deus.
29 Tveir eða þrír mega spá á samkomunni, og þá einn í einu en allir aðrir hlusti. Sé einn að spá og einhver annar fær boðskap á meðan, eða sérstaka innsýn í eitthvað frá Guði, þá má hann ekki grípa fram í, heldur skal hann leyfa þeim sem er að tala að ljúka máli sínu.
29 Tratando-se de profetas, falem apenas dois ou três, e os outros julguem.
30 — ausente —
30 Se, porém, vier revelação a outrem que esteja assentado, cale-se o primeiro.
31 Þannig geta allir, sem hafa fengið spádóm, talað og þá hver á eftir öðrum og allir munu læra af og hljóta uppörvun og hjálp.
31 Porque todos podereis profetizar, um após outro, para todos aprenderem e serem consolados.
32 Munið að sá sem fær boðskap frá Guði, hefur líka mátt til að halda aftur af sér uns röðin er komin að honum.
32 Os espíritos dos profetas estão sujeitos aos próprios profetas;
33 Guð vill ekki skipulagsleysi í söfnuði ykkar, heldur að þar ríki friður og regla. Þannig er það líka í öllum kristnum söfnuðum.
33 porque Deus não é de confusão, e sim de paz. Como em todas as igrejas dos santos,
34 Konur skulu ekki tala í guðsþjónustunum. Það er regla alls staðar. Þær skulu vera mönnum sínum undirgefnar eins og Biblían kennir.
34 conservem-se as mulheres caladas nas igrejas, porque não lhes é permitido falar; mas estejam submissas como também a lei o determina.
35 En þurfi þær að spyrja um eitthvað sem fram fer í guðsþjónustunni, þá spyrji þær eiginmenn sína heima, því það er ekki viðeigandi að konur tali í guðsþjónustu.
35 Se, porém, querem aprender alguma coisa, interroguem, em casa, a seu próprio marido; porque para a mulher é vergonhoso falar na igreja.
36 Eruð þið ósammála? Haldið þið kannski að orð Guðs komi frá ykkur, Korintumenn, eða sé ykkur einum ætlað?
36 Porventura, a palavra de Deus se originou no meio de vós ou veio ela exclusivamente para vós outros?
37 Þið sem teljið ykkur geta spáð eða hafa aðra sérstaka hæfileika frá heilögum anda, ættuð manna fyrstir að gera ykkur grein fyrir því að það sem ég segi, eru fyrirmæli frá Drottni sjálfum.
37 Se alguém se considera profeta ou espiritual, reconheça ser mandamento do Senhor o que vos escrevo.
38 Ef einhver er enn ósammála, þá hann um það.
38 E, se alguém o ignorar, será ignorado.
39 Vinir mínir, sækist því eftir spádómsgáfunni til þess að þið getið boðað orð Guðs hreint og ómengað, og ekkert fari milli mála. Komið ekki í veg fyrir að talað sé í tungum og
39 Portanto, meus irmãos, procurai com zelo o dom de profetizar e não proibais o falar em outras línguas.
40 gætið þess að allt fari skipulega og sómasamlega fram.
40 Tudo, porém, seja feito com decência e ordem.

Ler em outra tradução

Comparar com outra

Estude este capítulo no WhatsApp

Peça à IA da Bíblia Fala para explicar 1 Coríntios 14, comparar traduções ou montar um estudo — tudo direto pelo WhatsApp.