Tiago 4
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ (ISL) vs BKJ
1 Hvað veldur öllum þessum deilum og rifrildi á meðal ykkar? Eru það ekki hinar illu hvatir sem reyna að ná valdi yfir ykkur?
1 De onde vêm as guerras e brigas entre vós? Porventura não vêm disto, das concupiscências que guerreiam nos vossos membros?
2 Þið heimtið, en fáið samt ekki, þið drepið og öfundið – girnist eigur annarra, þið hafið ekki ráð á að eignast slíkt og beitið síðan ofbeldi til að ná því. Ástæða þess að þið fáið ekki það sem þið girnist, er einfaldlega sú að þið biðjið ekki Guð um það.
2 Cobiçais, e nada tendes; matais, e desejais ter, e não podeis obter; combateis e guerreais, e nada tendes, porque não pedis.
3 En jafnvel þótt þið biðjið, þá fáið þið það ekki, því þið biðjið með röngu hugarfari, já, viljið njóta þessara hluta af eigingirni.
3 Pedis, e não recebeis, porque pedis mal, para consumirdes em vossos deleites.
4 Þið líkist ótrúrri konu, sem elskar óvin manns síns. Skiljið þið ekki að vinátta við heiminn – illar nautnir þessa heims – er óvinátta við Guð. Ég endurtek: Ef markmið ykkar er að fá notið allra nautna þessa óguðlega heims, þá getið þið ekki samtímis verið vinir Guðs.
4 Adúlteros e adúlteras, não sabeis vós que a amizade do mundo é inimizade contra Deus? Qualquer que quiser ser amigo do mundo, torna-se um inimigo de Deus.
5 Eða hvað haldið þið að Biblían eigi við þegar hún segir að heilagur andi, sem Guð hefur sent í hjörtu okkar, vaki yfir okkur og sé umhugað um velferð okkar?
5 Pensais vós que a escritura diz em vão: O Espírito que em nós habita tem ciúmes?
6 Heilagur andi styrkir okkur gegn öllum illum hvötum. Og Biblían segir líka: „Guð stendur gegn dramblátum, en blessar og hjálpar hinum auðmjúku.“
6 Antes, dá mais graça. Portanto ele diz: Deus resiste aos orgulhosos, mas dá graça aos humildes.
7 Beygið ykkur því undir vald Guðs. Standið gegn djöflinum og þá mun hann flýja ykkur.
7 Sujeitai-vos, pois, a Deus, resisti ao diabo, e ele fugirá de vós.
8 Nálgist Guð og þá mun hann nálgast ykkur. Þvoið hendur ykkar, syndarar, og gefið Guði einum rúm í hjörtum ykkar, svo að þau verði heil og hrein.
8 Chegai-vos a Deus, e ele se chegará a vós. Limpai vossas mãos, vós pecadores; e purificai vossos corações, vós de duplo ânimo.
9 Grátið yfir syndum ykkar og iðrist af öllu hjarta. Hláturinn snúist í hryggð og gleðin í dapurleik.
9 Estai aflitos, e lamentai e chorai; converta-se o vosso riso em pranto, e a vossa alegria em pesar.
10 Þegar þið auðmýkið ykkur fyrir Drottni, mun hann upphefja ykkur, hughreysta og hjálpa.
10 Humilhai-vos diante do Senhor, e ele vos exaltará.
11 Verið ekki aðfinnslusöm og talið ekki illa hvert um annað, vinir. Ef þið gerið það, brjótið þið boðorð Guðs að elska hvert annað. Þetta boðorð var okkur ekki gefið til að vega það og meta, heldur til að við hlýddum því.
11 Não faleis mal uns dos outros, meus irmãos. Aquele que fala mal de seu irmão, e julga a seu irmão, fala mal da lei, e julga a lei; e, se tu julgas a lei, já não és um cumpridor da lei, mas juiz.
12 Hann sem gaf þessa skipun, er sá eini, sem getur dæmt mál okkar mannanna með réttvísi. Hann einn ákveður hvort við frelsumst eða glötumst, og hvaða rétt hafið þið þá til að gagnrýna aðra og dæma?
12 Há um legislador que é capaz de salvar e destruir. Quem és tu, porém, que julgas a outrem?
13 Takið eftir, þið sem segið: „Í dag eða á morgun förum við til þessa eða hins bæjarins og þar ætlum við að dveljast í eitt ár og græða á viðskiptum.“
13 Ide agora vós, que dizeis: Hoje, ou amanhã, iremos a tal cidade, e lá passaremos um ano, e compraremos, e venderemos, e teremos um ganho.
14 Vitið þið nokkuð hvað morgundagurinn ber í skauti sínu? Líf ykkar er jafn hverfult og morgunþokan, sem sést um stund, en hverfur síðan.
14 Porque vós não sabeis o que trará o amanhã. Porquanto, o que é a vossa vida? É apenas um vapor que aparece por um pouco de tempo, e depois desaparece.
15 Segið heldur: „Ef Drottinn vill, þá lifum við og gerum þetta eða hitt.“
15 Porque isso é o que devíeis dizer: Se o Senhor quiser, haveremos de viver, e faremos isto ou aquilo.
16 Nú stærið þið ykkur af eigin áformum og slíkt stærilæti er Guði á móti skapi.
16 Mas agora vos gloriais em vossas presunções; toda esta glória é maligna.
17 Sá sem hefur vit á að gera hið góða, en gerir það samt ekki, drýgir synd.
17 Portanto, aquele que sabe fazer o bem e não o faz, comete pecado.
Atalhos do teclado
- Capítulo anterior←
- Próximo capítulo→
- Versículo anteriork
- Próximo versículoj
- Limpar seleçãoEsc
- Esta ajuda?
Estude este capítulo no WhatsApp
Peça à IA da Bíblia Fala para explicar Tiago 4, comparar traduções ou montar um estudo — tudo direto pelo WhatsApp.