Salmos 138

Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ (ISL)

1 Drottinn, ég þakka þér af öllu hjarta! Ég vil lofsyngja þér í áheyrn englanna á himnum.

2 Ég vil falla fram fyrir þínu heilaga musteri, þakka þér elsku þína og trúfesti, og loforð þín sem þú hefur innsiglað með þínu mikilfenglega nafni.

3 Þegar ég bið, þá heyrir þú bænir mínar, styrkir mig og hughreystir.

4 Konungar jarðarinnar skulu þakka þér, Drottinn, því að allir heyra þeir rödd þína.

5 Já, þeir skulu syngja um verk Drottins, því að mikil er dýrð hans.

6 En þótt Drottinn sé mikill, þá lýtur hann að hinum lítilmótlegu, en hrokafullir halda sig fjarri.

7 Þótt ég sé umvafinn erfiðleikum, muntu sjá um að allt fari vel. Þú réttir fram hnefann gegn óvinum mínum. Kraftur þinn mun frelsa mig.

8 Drottinn mun leysa úr öllum mínum málum – því að Drottinn, miskunn þín varir að eilífu. Yfirgef mig ekki, því að ég er verk handa þinna.

Ler em outra tradução

Comparar lado a lado

Estude este capítulo no WhatsApp

Peça à IA da Bíblia Fala para explicar Salmos 138, comparar traduções ou montar um estudo — tudo direto pelo WhatsApp.