Atos 25

Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ (ISL) vs ARIB

Sair da comparação
ARIB Almeida Revisada Imprensa Bíblica
1 Þrem dögum eftir að Festus kom til Sesareu, til að taka við embætti, fór hann til Jerúsalem.
1 Tendo, pois, entrado Festo na província, depois de três dias subiu de Cesaréia a Jerusalém.
2 Þar náðu æðstu prestarnir og leiðtogar Gyðinga tali af honum og sögðu frá afskiptum sínum af Páli.
2 E os principais sacerdotes e os mais eminentes judeus fizeram-lhe queixa contra Paulo e, em detrimento deste,
3 Þeir báðu hann að koma strax með Pál til Jerúsalem. (Ætlun þeirra var að gera honum fyrirsát á leiðinni og drepa hann.)
3 lhe rogavam o favor de o mandar a Jerusalém, armando ciladas para o matarem no caminho.
4 Festus svaraði að þar sem Páll væri í Sesareu og hann sjálfur á leið þangað,
4 Mas Festo respondeu que Paulo estava detido em Cesaréia, e que ele mesmo brevemente partiria para lá.
5 væri best að þeir, sem afskipti hefðu af málinu, yrðu honum samferða til réttarhaldanna.
5 Portanto, disse ele às autoridades dentre vós desçam comigo e, se há nesse homem algum crime, acusem-no.
6 Átta til tíu dögum síðar kom Festus til Sesareu og hófust réttarhöldin yfir Páli strax næsta dag.
6 Tendo-se demorado entre eles não mais de oito ou dez dias, desceu a Cesaréia; e no dia seguinte, sentando-se no tribunal, mandou trazer Paulo.
7 Þegar Páll var leiddur inn í réttarsalinn, hópuðust Gyðingarnir frá Jerúsalem umhverfis hann og báru á hann margar alvarlegar sakir, sem þeir gátu þó ekki sannað.
7 Tendo ele comparecido, rodearam-no os judeus que haviam descido de Jerusalém, trazendo contra ele muitas e graves acusações, que não podiam provar.
8 Páll vísaði öllum þessum ásökunum á bug og sagði: „Ég er saklaus af öllu þessu. Hvorki hef ég brotið lög Gyðinga né vanhelgað musterið og því síður gert uppreisn gegn rómverskum yfirvöldum.“
8 Paulo, porém, respondeu em sua defesa: Nem contra a lei dos judeus, nem contra o templo, nem contra César, tenho pecado em coisa alguma.
9 Festus, sem vildi þóknast Gyðingunum, spurði Pál: „Viltu fara til Jerúsalem og leyfa mér að taka upp málið þar?“
9 Todavia Festo, querendo agradar aos judeus, respondendo a Paulo, disse: Queres subir a Jerusalém e ali ser julgado perante mim acerca destas coisas?
10 — ausente —
10 Mas Paulo disse: Estou perante o tribunal de César, onde devo ser julgado; nenhum mal fiz aos judeus, como muito bem sabes.
11 — ausente —
11 Se, pois, sou malfeitor e tenho cometido alguma coisa digna de morte, não recuso morrer; mas se nada há daquilo de que estes me acusam, ninguém me pode entregar a eles; apelo para César.
12 Festus ræddi málið við ráðgjafa sína og svaraði síðan: „Allt í lagi. Þú hefur skotið máli þínu til keisarans og til keisarans skaltu fara!“
12 Então Festo, tendo falado com o conselho, respondeu: Apelaste para César; para César irás.
13 Skömmu síðar kom Agrippa konungur ásamt Berníke í nokkurra daga heimsókn til Festusar.
13 Passados alguns dias, o rei Agripa e Berenice vieram a Cesaréia em visita de saudação a Festo.
14 Meðan þau dvöldust þar, ræddi Festus mál Páls við konunginn og sagði: „Hér hjá okkur er fangi sem á óútkljáð mál frá því Felix var hér.
14 E, como se demorassem ali muitos dias, Festo expôs ao rei o caso de Paulo, dizendo: Há aqui certo homem que foi deixado preso por Félix,
15 Þegar ég var í Jerúsalem sögðu æðstu prestarnir, og aðrir leiðtogar Gyðinga, mér álit sitt á málinu og heimtuðu að ég léti drepa hann.
15 a respeito do qual, quando estive em Jerusalém, os principais sacerdotes e os anciãos dos judeus me fizeram queixas, pedindo sentença contra ele;
16 Að sjálfsögðu benti ég þeim strax á að samkvæmt rómverskum lögum væru menn ekki dæmdir til dauða fyrr en búið væri að rannsaka mál þeirra og þeir fengið að flytja vörn.
16 aos quais respondi que não é costume dos romanos condenar homem algum sem que o acusado tenha presentes os seus acusadores e possa defender-se da acusação.
17 Daginn eftir að þeir komu hingað tók ég málið fyrir og lét leiða Pál inn.
17 Quando então eles se haviam reunido aqui, sem me demorar, no dia seguinte sentei-me no tribunal e mandei trazer o homem;
18 Sakirnar, sem bornar voru á hann, reyndust vera allt aðrar en þær sem ég hafði búist við.
18 contra o qual os acusadores, levantando-se, não apresentaram acusação alguma das coisas perversas que eu suspeitava;
19 Þær snerust allar um trúarbrögð þeirra og einhvern Jesú, sem var dáinn, en Páll hélt fram að væri lifandi.
19 tinham, porém, contra ele algumas questões acerca da sua religião e de um tal Jesus defunto, que Paulo afirmava estar vivo.
20 Ég var í stökustu vandræðum með hvernig ég ætti að dæma í málinu, svo ég spurði Pál hvort hann vildi ekki að málið yrði tekið fyrir í Jerúsalem,
20 E, estando eu perplexo quanto ao modo de investigar estas coisas, perguntei se não queria ir a Jerusalém e ali ser julgado no tocante às mesmas.
21 en þá áfrýjaði hann til keisarans. Ég skipaði því svo fyrir að hann yrði að vera í fangelsinu þangað til ég gæti komið honum til keisarans.“
21 Mas apelando Paulo para que fosse reservado ao julgamento do imperador, mandei que fosse detido até que o enviasse a César.
22 „Ég hefði gaman af að heyra í þessum manni,“ sagði Agrippa. „Það skaltu fá,“ svaraði Festus, „jafnvel strax á morgun.“
22 Então Agripa disse a Festo: Eu bem quisera ouvir esse homem. Respondeu-lhe ele: Amanhã o ouvirás.
23 Daginn eftir kom konungurinn ásamt Berníke til réttarins með mikilli viðhöfn. Í fylgd með honum voru foringjar úr hernum og æðstu embættismenn borgarinnar. Þá gaf Festus skipun um að Páll skyldi leiddur í salinn.
23 No dia seguinte vindo Agripa e Berenice, com muito aparato, entraram no auditório com os chefes militares e homens principais da cidade; então, por ordem de Festo, Paulo foi trazido.
24 Þegar allir voru komnir, tók Festus til máls og sagði: „Agrippa konungur og aðrir viðstaddir, þetta er maðurinn sem Gyðingar hér og í Jerúsalem heimta að verði tekinn af lífi.
24 Disse Festo: Rei Agripa e vós todos que estais presentes conosco, vedes este homem por causa de quem toda a multidão dos judeus, tanto em Jerusalém como aqui, recorreu a mim, clamando que não convinha que ele vivesse mais.
25 Ég lít svo á að hann hafi ekkert gert sem réttlæti dauðadóm. Nú hefur hann hins vegar skotið máli sínu til keisarans og á ég því engan annan kost en að senda hann þangað.
25 Eu, porém, achei que ele não havia praticado coisa alguma digna de morte; mas havendo ele apelado para o imperador, resolvi remeter-lho.
26 Vandinn er hins vegar sá að ég veit ekki hvað ég á að skrifa keisaranum, því að engin kæra liggur frammi gegn manninum! Þess vegna hef ég leitt hann fyrir ykkur, og þó einkanlega þig, Agrippa konungur. Ég vil fá botn í málið, svo ég viti hvað ég á að skrifa.
26 Do qual não tenho coisa certa que escreva a meu senhor, e por isso perante vós o trouxe, principalmente perante ti, ó rei Agripa, para que, depois de feito o interrogatório, tenha eu alguma coisa que escrever.
27 Það væri lítið vit í að senda fanga til keisarans án ákæru!“
27 Porque não me parece razoável enviar um preso, e não notificar as acusações que há contra ele.

Ler em outra tradução

Comparar com outra

Estude este capítulo no WhatsApp

Peça à IA da Bíblia Fala para explicar Atos 25, comparar traduções ou montar um estudo — tudo direto pelo WhatsApp.