Atos 19

Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ (ISL) vs NVI

Sair da comparação
NVI Nova Versão Internacional
1 Meðan Apollós var í Korintu, var Páll á ferðalagi um Litlu-Asíu. Hann kom til Efesus, hitti þar nokkra lærisveina
1 Enquanto Apolo estava em Corinto, Paulo, atravessando as regiões altas, chegou a Éfeso. Ali encontrou alguns discípulos
2 og spurði: „Fenguð þið heilagan anda þegar þið tókuð trú?“
2 e lhes perguntou: "Vocês receberam o Espírito Santo quando creram? " Eles responderam: "Não, nem sequer ouvimos que existe o Espírito Santo".
3 „Hvaða skírn eruð þið skírðir?“ spurði hann. „Skírn Jóhannesar,“ svöruðu þeir.
3 "Então, que batismo vocês receberam? ", perguntou Paulo. "O batismo de João", responderam eles.
4 Benti Páll þeim á að skírn Jóhannesar hefði verið iðrunarskírn fyrir þá sem vildu snúa sér frá syndinni og til Guðs, en að henni lokinni yrðu menn að taka trú á Jesú, þann sem Jóhannes hafði sagt að kæmi á eftir sér.
4 Disse Paulo: "O batismo de João foi um batismo de arrependimento. Ele dizia ao povo que cresse naquele que viria depois dele, isto é, em Jesus".
5 Þegar þeir heyrðu þetta, létu þeir skírast í nafni Drottins Jesú.
5 Ouvindo isso, eles foram batizados no nome do Senhor Jesus.
6 Og síðan, er Páll lagði hendur á höfuð þeirra, kom heilagur andi yfir þá og þeir töluðu tungum og spáðu – fluttu boðskap frá Guði.
6 Quando Paulo lhes impôs as mãos, veio sobre eles o Espírito Santo, e começaram a falar em línguas e a profetizar.
7 Menn þessir voru um tólf talsins.
7 Eram ao todo uns doze homens.
8 Eftir þetta fór Páll til samkomuhúss Gyðinganna og þar predikaði hann djarflega á hverjum helgidegi í þrjá mánuði. Hann gerði grein fyrir hverju hann trúði og hvers vegna.
8 Paulo entrou na sinagoga e ali falou com liberdade durante três meses, argumentando convincentemente acerca do Reino de Deus.
9 Sumir mótmæltu þó boðskap hans og höfnuðu Kristi opinberlega. Hann greindi á milli þessara tveggja hópa og tók með sér hina trúuðu, hóf nýjar samkomur í skóla Týrannusar og predikaði þar daglega.
9 Mas alguns deles se endureceram e se recusaram a crer, e começaram a falar mal do Caminho diante da multidão. Paulo, então, afastou-se deles. Tomando consigo os discípulos, passou a ensinar diariamente na escola de Tirano.
10 Þannig hélt hann áfram í tvö ár og árangurinn var sá að allir íbúar héraðsins Asíu – bæði Gyðingar og Grikkir – fengu að heyra boðskap Drottins.
10 Isso continuou por dois anos, de forma que todos os judeus e os gregos que viviam na província da Ásia ouviram a palavra do Senhor.
11 Guð gaf Páli kraft til að gera óvenjuleg kraftaverk.
11 Deus fazia milagres extraordinários por meio de Paulo,
12 Það gerðist jafnvel er klútar eða flíkur af honum voru lögð á sjúka að þeir læknuðust og illir andar fóru út af þeim.
12 de modo que até lenços e aventais que Paulo usava eram levados e colocados sobre os enfermos. Estes eram curados de suas doenças, e os espíritos malignos saíam deles.
13 Flokkur særingamanna, allt Gyðingar, hafði það að starfi að ferðast um og reka út illa anda. Nú ákváðu þeir að gera tilraun með að nota nafn Drottins Jesú. Orðin sem nota átti til að særa út illu andana voru þessi: „Ég særi þig við Jesú, sem Páll predikar – út með þig!“
13 Alguns judeus que andavam expulsando espíritos malignos tentaram invocar o nome do Senhor Jesus sobre os endemoninhados, dizendo: "Em nome de Jesus, a quem Paulo prega, eu lhes ordeno que saiam! "
14 Þeir voru allir synir Skeva, æðsta prests, sjö talsins.
14 Os que estavam fazendo isso eram os sete filhos de Ceva, um dos chefes dos sacerdotes dos judeus.
15 En þegar þeir gerðu tilraun með þetta á manni, sem hafði illan anda, svaraði illi andinn: „Jesú þekki ég og líka Pál, en hverjir eruð þið?“
15 Um dia, o espírito maligno lhes respondeu: "Jesus, eu conheço, Paulo, eu sei quem é; mas vocês, quem são? "
16 Það skipti engum togum, hann réðist á tvo þeirra og barði þá svo að þeir flýðu naktir og illa meiddir út úr húsinu.
16 Então o endemoninhado saltou sobre eles e os dominou, espancando-os com tamanha violência que eles fugiram da casa nus e feridos.
17 Fréttin af þessu barst fljótt um alla Efesus, jafnt til Gyðinga sem Grikkja. Urðu borgarbúar óttaslegnir og nafn Jesú óx mjög í augum fólksins.
17 Quando isso se tornou conhecido de todos os judeus e os gregos que viviam em Éfeso, todos eles foram tomados de temor; e o nome do Senhor Jesus era engrandecido.
18 — ausente —
18 Muitos dos que creram vinham, e confessavam e declaravam abertamente suas más obras.
19 — ausente —
19 Grande número dos que tinham praticado ocultismo reuniram seus livros e os queimaram publicamente. Calculado o valor total, este chegou a cinqüenta mil dracmas.
20 Þetta sýnir glöggt hve boðskapur Guðs hafði sterk áhrif á þessu svæði.
20 Dessa maneira a palavra do Senhor muito se difundia e se fortalecia.
21 Eftir þetta fannst Páli heilagur andi ætlast til að hann færi yfir til Grikklands, áður en hann sneri aftur til Jerúsalem. „Og þegar ég hef verið þar,“ sagði hann, „ber mér að fara til Rómar.“
21 Depois dessas coisas, Paulo decidiu no espírito ir a Jerusalém, passando pela Macedônia e pela Acaia. Ele dizia: "Depois de haver estado ali, é necessário também que eu vá visitar Roma".
22 Síðan sendi hann tvo aðstoðarmenn sína, Tímóteus og Erastus, á undan sér til Grikklands, en dvaldist sjálfur enn um stund í Litlu-Asíu.
22 Então enviou à Macedônia dois dos seus auxiliares, Timóteo e Erasto, e permaneceu mais um pouco na província da Ásia.
23 Um þessar mundir kom upp mikil ólga í Efesus vegna hinna kristnu.
23 Naquele tempo houve um grande tumulto por causa do Caminho.
24 Upphafið átti Demetríus, silfursmiður, en hann hafði marga menn í vinnu við að smíða silfurskrín, tileinkuð grísku veiðigyðjunni Artemis.
24 Um ourives chamado Demétrio, que fazia miniaturas de prata do templo de Ártemis e que dava muito lucro aos artífices,
25 Hann kallaði menn sína, og aðra sem unnu við skyldan iðnað, á ráðstefnu og sagði:
25 reuniu-os juntamente com os trabalhadores dessa profissão e disse: "Senhores, vocês sabem que temos uma boa fonte de lucro nesta atividade
26 Ykkur er ljóst að þessi Páll hefur talið fjölmörgum trú um að guðir, sem búnir eru til af mannahöndum, séu alls engir guðir. Afleiðingin er sú að salan hjá okkur hefur stórlega dregist saman. Þetta hefur ekki aðeins gerst hér í Efesus, heldur í öllu héraðinu.
26 e estão vendo e ouvindo como este indivíduo, Paulo, está convencendo e desviando grande número de pessoas aqui em Éfeso e em quase toda a província da Ásia. Diz ele que deuses feitos por mãos humanas não são deuses.
27 Vitanlega hugsa ég ekki aðeins um viðskiptalegu hliðina á þessu máli – okkar fjárhagslega tap – heldur einnig þann möguleika að áhrif hinnar miklu gyðju, Artemisar fari minnkandi og að hún, sem ekki aðeins er tilbeðin í þessum hluta Litlu-Asíu heldur um allan heim – muni gleymast!“
27 Não somente há o perigo de nossa profissão perder sua reputação, mas também de o templo da grande deusa Ártemis cair em descrédito e de a própria deusa, adorada em toda a província da Ásia e em todo o mundo, ser destituída de sua majestade divina".
28 Þegar fundarmenn heyrðu þetta urðu þeir ævareiðir og hrópuðu í sífellu: „Mikil er Artemis Efesusmanna!“
28 Ao ouvirem isso, eles ficaram furiosos e começaram a gritar: "Grande é a Ártemis dos efésios! "
29 Af þessum sökum safnaðist mikill mannfjöldi saman og öll borgin komst í uppnám. Múgurinn ruddist á leikvanginn, dró með sér þá Gajus og Aristarkus, fylgdarmenn Páls, til að yfirheyra þá.
29 Em pouco tempo a cidade toda estava em tumulto. O povo foi às pressas para o teatro, arrastando os companheiros de viagem de Paulo, os macedônios Gaio e Aristarco.
30 Páll vildi reyna að komast inn í mannþröngina, en lærisveinarnir hindruðu það.
30 Paulo queria apresentar-se à multidão, mas os discípulos não o permitiram.
31 Sumir hinna rómversku embættismanna héraðsins voru vinir Páls. Þeir sendu honum boð og báðu hann að hætta ekki lífi sínu með því að fara þangað inn.
31 Alguns amigos de Paulo dentre as autoridades da província chegaram a mandar-lhe um recado, pedindo-lhe que não se arriscasse a ir ao teatro.
32 Á leikvanginum hrópaði hver í kapp við annan og þar var algjör upplausn. Engir tveir voru sammála og fæstir vissu reyndar hvers vegna þeir voru þar.
32 A assembléia estava em confusão: uns gritavam uma coisa, outros gritavam outra. A maior parte do povo nem sabia por que estava ali.
33 Þá kom einhver af Gyðingunum auga á Alexander og var hann þegar dreginn fram. Hann gaf merki um þögn og síðan reyndi hann að taka til máls.
33 Alguns da multidão julgaram que Alexandre era a causa do tumulto, quando os judeus o empurraram para frente. Ele fez sinal pedindo silêncio, com a intenção de fazer sua defesa diante do povo.
34 Þegar fólkinu varð ljóst að hann var Gyðingur, æpti það og hrópaði í nærfellt tvær stundir: „Mikil er Artemis Efesusmanna! Mikil er Artemis Efesusmanna!“
34 Mas quando ficaram sabendo que ele era judeu, todos gritaram a uma só voz durante cerca de duas horas: "Grande é a Ártemis dos efésios! "
35 Loks tókst borgarstjóranum að þagga svo niður í mannfjöldanum að hann gat tekið til máls. „Efesusmenn,“ sagði hann. „Öllum er ljóst að Efesus er miðstöð tilbeiðslu hinnar miklu Artemisar og það var líkneski hennar sem féll til okkar af himni.
35 O escrivão da cidade acalmou a multidão e disse: "Efésios, quem não sabe que a cidade de Éfeso é a guardiã do templo da grande Ártemis e da sua imagem que caiu do céu?
36 Þetta er óhrekjandi staðreynd og því ættuð þið ekki að láta þetta raska ró ykkar né gera neitt í fljótfærni.
36 Portanto, visto que estes fatos são inegáveis, acalmem-se e não façam nada precipitadamente.
37 Samt hafið þið nú dregið þessa menn hingað, þótt þeir hafi hvorki stolið neinu úr musteri Artemisar né lastmælt henni.
37 Vocês trouxeram estes homens aqui, embora eles não tenham roubado templos nem blasfemado contra a nossa deusa.
38 Ef Demetríus og smiðirnir hafa einhverja ákæru á hendur þeim, þá er rétturinn reiðubúinn að taka málið fyrir undir eins, því að hann er að störfum núna. Mál þetta verður að reka á lögmætan hátt.
38 Se Demétrio e seus companheiros de profissão têm alguma queixa contra alguém, os tribunais estão abertos, e há procônsules. Eles que apresentem suas queixas ali.
39 Ef um önnur deilumál er að ræða, gerið þá út um þau á hinum reglubundnu fundum borgarráðsins,
39 Se há mais alguma coisa que vocês desejam apresentar, isso será decidido em assembléia, conforme a lei.
40 en svona megum við ekki fara að. Við eigum áreiðanlega á hættu að verða að svara til saka, hjá rómversku yfirvöldunum, fyrir þetta uppþot hér í dag, því að það var algjörlega tilefnislaust. Heimti Rómverjarnir skýringu, veit ég hreint ekki hvað segja skal.“
40 Da maneira como está, corremos o perigo de sermos acusados de perturbar a ordem pública por causa dos acontecimentos de hoje. Nesse caso, não seríamos capazes de justificar este tumulto, visto que não há razão para tal".
41 Síðan bað hann fólkið að fara og mannfjöldinn dreifðist.
41 E, tendo dito isso, encerrou a assembléia.

Ler em outra tradução

Comparar com outra

Estude este capítulo no WhatsApp

Peça à IA da Bíblia Fala para explicar Atos 19, comparar traduções ou montar um estudo — tudo direto pelo WhatsApp.