Atos 12

Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ (ISL) vs ARA

Sair da comparação
ARA Almeida Revista e Atualizada 1993
1 Um þetta leyti tók Heródes konungur að ofsækja söfnuðinn í Jerúsalem
1 Por aquele tempo, mandou o rei Herodes prender alguns da igreja para os maltratar,
2 og lét hann taka Jakob postula (bróður Jóhannesar) af lífi.
2 fazendo passar a fio de espada a Tiago, irmão de João.
3 Þegar Heródes sá að leiðtogum Gyðinga líkaði þetta vel, lét hann handtaka Pétur, meðan á páskahátíðinni stóð,
3 Vendo ser isto agradável aos judeus, prosseguiu, prendendo também a Pedro. E eram os dias dos pães asmos.
4 og varpa honum í fangelsi. Þar var Péturs gætt af sextán hermönnum. Ætlun Heródesar var að koma Pétri í hendur Gyðingunum og láta taka hann af lífi þegar páskarnir væru liðnir.
4 Tendo-o feito prender, lançou-o no cárcere, entregando-o a quatro escoltas de quatro soldados cada uma, para o guardarem, tencionando apresentá-lo ao povo depois da Páscoa.
5 Meðan Pétur var í fangelsinu var söfnuðurinn stöðugt í bæn til Guðs fyrir honum.
5 Pedro, pois, estava guardado no cárcere; mas havia oração incessante a Deus por parte da igreja a favor dele.
6 Kvöldið áður en aftakan átti að fara fram svaf Pétur þar sem hann lá hlekkjaður milli tveggja hermanna. Aðrir verðir voru úti fyrir fangelsisdyrunum.
6 Quando Herodes estava para apresentá-lo, naquela mesma noite, Pedro dormia entre dois soldados, acorrentado com duas cadeias, e sentinelas à porta guardavam o cárcere.
7 Skyndilega birti í klefanum. Engill frá Drottni var kominn og stóð hjá Pétri. Engillinn ýtti við honum, vakti hann og sagði: „Fljótur! Á fætur með þig!“ Þá féllu handjárnin af Pétri.
7 Eis, porém, que sobreveio um anjo do Senhor, e uma luz iluminou a prisão; e, tocando ele o lado de Pedro, o despertou, dizendo: Levanta-te depressa! Então, as cadeias caíram-lhe das mãos.
8 „Klæddu þig, farðu í skóna og yfirhöfnina og eltu mig!“ sagði hann. Pétur hlýddi.
8 Disse-lhe o anjo: Cinge-te e calça as sandálias. E ele assim o fez. Disse-lhe mais: Põe a capa e segue-me.
9 Pétur yfirgaf klefann og fylgdi englinum. Hann hélt að annað hvort væri þetta draumur eða vitrun – hann trúði ekki að þetta væri raunveruleiki.
9 Então, saindo, o seguia, não sabendo que era real o que se fazia por meio do anjo; parecia-lhe, antes, uma visão.
10 Þeir gengu nú fram hjá fyrstu og síðan annarri varðsveit fangelsisins og komu að járnhliðinu við götuna, sem opnaðist af sjálfu sér! Þeir gengu út á götuna og fram með húsaröðinni, en þá hvarf engillinn.
10 Depois de terem passado a primeira e a segunda sentinela, chegaram ao portão de ferro que dava para a cidade, o qual se lhes abriu automaticamente; e, saindo, enveredaram por uma rua, e logo adiante o anjo se apartou dele.
11 Skyndilega áttaði Pétur sig á hvað gerst hafði. „Þetta er þá raunveruleiki!“ sagði hann við sjálfan sig. „Drottinn hefur sent engil og bjargað mér úr höndum Heródesar og frá áformum Gyðinganna.“
11 Então, Pedro, caindo em si, disse: Agora, sei, verdadeiramente, que o Senhor enviou o seu anjo e me livrou da mão de Herodes e de toda a expectativa do povo judaico.
12 Eftir stutta umhugsun ákvað hann að fara heim til Maríu, móður Jóhannesar Markúsar, en þar voru margir samankomnir til að biðja,
12 Considerando ele a sua situação, resolveu ir à casa de Maria, mãe de João, cognominado Marcos, onde muitas pessoas estavam congregadas e oravam.
13 Hann barði að dyrum og fór þá stúlka, Róde að nafni, fram til að opna.
13 Quando ele bateu ao postigo do portão, veio uma criada, chamada Rode, ver quem era;
14 Þegar hún heyrði að þetta var Pétur varð hún afar glöð og hljóp aftur inn til að segja öllum að Pétur stæði fyrir utan.
14 reconhecendo a voz de Pedro, tão alegre ficou, que nem o fez entrar, mas voltou correndo para anunciar que Pedro estava junto do portão.
15 En þau trúðu henni ekki og sögðu: „Þú ert ekki með öllum mjalla!“ En hún sat föst við sinn keip. Þá sagði einhver: „Þetta hlýtur þá að vera engill hans.“
15 Eles lhe disseram: Estás louca. Ela, porém, persistia em afirmar que assim era. Então, disseram: É o seu anjo.
16 Meðan á þessum samræðum stóð hélt Pétur áfram að berja og þegar þau fóru fram og opnuðu, urðu þau orðlaus af undrun.
16 Entretanto, Pedro continuava batendo; então, eles abriram, viram-no e ficaram atônitos.
17 Hann gaf þeim merki um að hafa ekki hátt og sagði frá hvað gerst hafði, hvernig Drottinn hefði leyst hann úr fangelsinu og bætti svo við: „Segið Jakobi og hinum frá þessu.“ Því næst fór hann burt á öruggari stað.
17 Ele, porém, fazendo-lhes sinal com a mão para que se calassem, contou-lhes como o Senhor o tirara da prisão e acrescentou: Anunciai isto a Tiago e aos irmãos. E, saindo, retirou-se para outro lugar.
18 Þegar birti komst allt í uppnám í fangelsinu. Hvað var orðið af Pétri?
18 Sendo já dia, houve não pouco alvoroço entre os soldados sobre o que teria acontecido a Pedro.
19 Heródes hafði sent menn til að sækja hann, en þegar hann fannst ekki lét hann handtaka verðina sextán, dró þá fyrir rétt og lét lífláta þá. Eftir það fór hann til Sesareu og dvaldist þar um hríð.
19 Herodes, tendo-o procurado e não o achando, submetendo as sentinelas a inquérito, ordenou que fossem justiçadas. E, descendo da Judeia para Cesareia, Herodes passou ali algum tempo.
20 Meðan Heródes var í Sesareu kom þangað sendinefnd frá Týrus og Sídon til fundar við hann. Honum var meinilla við íbúa þessara borga og því komu þeir sér í mjúkinn hjá Blastusi, ritara hans, og fóru fram á friðsamleg samskipti, því að borgir þeirra áttu mikið undir verslun við land Heródesar.
20 Ora, havia séria divergência entre Herodes e os habitantes de Tiro e de Sidom; porém estes, de comum acordo, se apresentaram a ele e, depois de alcançar o favor de Blasto, camarista do rei, pediram reconciliação, porque a sua terra se abastecia do país do rei.
21 Sendinefndin fékk loforð um fund með Heródesi og þegar stundin nálgaðist, klæddist hann konungsskrúða sínum, settist í hásætið og ávarpaði þá.
21 Em dia designado, Herodes, vestido de trajo real, assentado no trono, dirigiu-lhes a palavra;
22 Að ræðunni lokinni hrópaði fólkið af fögnuði: „Þetta var ekki rödd manns – heldur Guðs!“
22 e o povo clamava: É voz de um deus, e não de homem!
23 Samstundis lagði engill frá Drottni sjúkdóm á Heródes, svo hann fylltist af ormum og lést. Ástæðan var sú að hann leyfði fólkinu að tilbiðja sig, en gaf Guði ekki dýrðina.
23 No mesmo instante, um anjo do Senhor o feriu, por ele não haver dado glória a Deus; e, comido de vermes, expirou.
24 Fagnaðarerindi Guðs breiddist nú hratt út og margir snerust til trúar.
24 Entretanto, a palavra do Senhor crescia e se multiplicava.
25 Strax og Barnabas og Páll höfðu lokið erindi sínu í Jerúsalem, sneru þeir aftur til Antíokkíu og tóku Jóhannes Markús með sér þangað.
25 Barnabé e Saulo, cumprida a sua missão, voltaram de Jerusalém, levando também consigo a João, apelidado Marcos.

Ler em outra tradução

Comparar com outra

Estude este capítulo no WhatsApp

Peça à IA da Bíblia Fala para explicar Atos 12, comparar traduções ou montar um estudo — tudo direto pelo WhatsApp.