2 Coríntios 7

Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ (ISL) vs NVT

Sair da comparação
NVT Nova Versão Transformadora
1 Kæru vinir, fyrst við eigum slík loforð sem þessi, snúum þá baki við öllu sem rangt er, hvort sem það er líkamlegt eða andlegt. Hreinsum okkur, lifum í sannri trú og gefum okkur Guði einum á vald.
1 Amados, visto que temos essas promessas, purifiquemo-nos de tudo que contamina o corpo ou o espírito, tornando-nos cada vez mais santos porque tememos a Deus.
2 Því segi ég ykkur: Opnið hjörtu ykkar á ný fyrir okkur, því að ekkert ykkar hefur orðið að þola neitt rangt af okkar hendi. Ekkert ykkar leiddum við afvega. Ekki höfum við svikið neitt ykkar eða rænt ykkur neinu.
2 Peço-lhes que abram o coração para nós. Não prejudicamos ninguém, nem desencaminhamos ninguém, nem nos aproveitamos de ninguém.
3 Þetta segi ég ekki í ávítunartón eða til að ásaka ykkur, því – eins og ég hef áður sagt – þá elska ég ykkur í lífi og dauða.
3 Não digo isso para condená-los. Já lhes disse que vocês estão em nosso coração. Estamos juntos, seja para morrer, seja para viver.
4 Ég ber mikið traust til ykkar og er mjög hreykinn af ykkur. Þið hafið orðið mér til mikillar uppörvunar og glatt mig stórlega í öllum þrengingum mínum.
4 Tenho muita confiança em vocês, e de vocês tenho muito orgulho. Vocês têm me encorajado grandemente e me proporcionado alegria, apesar de todas as nossas aflições.
5 Þegar við komum til Makedóníu, höfðum við enga eirð. Erfiðleikar mættu okkur hvert sem litið var. Bæði ytra og innra var ótti og barátta.
5 Quando chegamos à Macedônia, não tivemos nenhum descanso. Enfrentamos conflitos de todos os lados, com batalhas externas e temores internos.
6 En sá Guð, sem huggar niðurbeygða, styrkti okkur einmitt þá með því að senda Títus til okkar.
6 Mas Deus, que conforta os desanimados, nos encorajou com a chegada de Tito.
7 En heimsókn Títusar var ekki eina uppörvunin, heldur einnig fréttirnar, sem hann flutti okkur, um þá yndislegu dvöl sem hann átti hjá ykkur. Mikið gladdist ég þegar hann sagði mér hversu mjög þið hlökkuðuð til að sjá mig og hve leitt ykkur þótti það sem fyrir kom. Já, það gladdi mig að heyra um tryggð ykkar og hlýhug til mín.
7 Sua presença foi uma alegria, como também o foi a notícia que ele nos trouxe do encorajamento que recebeu de vocês. Quando ele nos contou quanto desejam me ver, quanto lamentam o que aconteceu e quão dedicados são a mim, fiquei muito feliz!
8 Nú er ég ekki lengur hryggur út af þessu bréfi sem ég sendi ykkur. Ég var mjög hryggur um tíma, því að ég vissi að bréfið mundi valda ykkur miklum sársauka, þó aðeins um skamma hríð.
8 Não me arrependo de ter enviado aquela carta severa, embora a princípio tenha lamentado a dor que ela lhes causou, ainda que por algum tempo.
9 Nú finnst mér gott að ég skyldi hafa sent það, ekki vegna þess að það særði ykkur, heldur vegna þess að sársaukinn leiddi ykkur til Guðs. Hryggðin sem náði tökum á ykkur, varð til góðs. Það er sú hryggð sem Guð vill finna meðal barna sinna og því þarf ég ekki að vera strangur við ykkur þegar ég kem.
9 Agora, porém, alegro-me por tê-la enviado, não pela tristeza que causou, mas porque a dor os levou ao arrependimento. Foi o tipo de tristeza que Deus espera de seu povo, portanto não lhes causamos mal algum.
10 Stundum notar Guð hryggð okkar til að leiða okkur frá syndinni og til eilífs lífs og þá verður hún okkur til blessunar. Hryggð hinna er hins vegar ekki sú sem fylgir sannri iðrun og forðar því ekki frá eilífum dauða.
10 Porque a tristeza que é da vontade de Deus conduz ao arrependimento e resulta em salvação. Não é uma tristeza que causa remorso. Mas a tristeza do mundo resulta em morte.
11 Sjáið nú til: Þessi hryggð frá Guði varð ykkur til góðs. Kæruleysið hvarf, en í staðinn urðuð þið grandvör og einlæg og vilduð umfram allt losna við syndina, sem ég benti ykkur á í bréfi mínu. Þið urðuð hrædd vegna þess sem gerst hafði og þráðuð að ég kæmi og hjálpaði ykkur. Þið sneruð ykkur strax að því að leysa vandann og upplýsa málið. Þið hafið gert allt, sem í ykkar valdi stóð, til að koma þessu í lag.
11 Vejam o que a tristeza que vem de Deus produziu em vocês! Trouxe dedicação, defesa de suas ações, indignação, temor, desejo de me ver, zelo e prontidão em punir a injustiça. Vocês mostraram que fizeram todo o necessário para corrigir a situação.
12 Ég skrifaði ykkur til þess að umhyggja ykkar fyrir okkur yrði Guði augljós. Sá var tilgangur minn með bréfinu, miklu fremur en sá að hjálpa manninum sem syndgaði eða þeim sem var órétti beittur.
12 Portanto, não lhes escrevi para falar de quem havia errado e de quem havia sido prejudicado, mas para que, diante de Deus, pudessem ver por si mesmos como são dedicados a nós.
13 Auk þeirrar uppörvunar, sem þið veittuð okkur með kærleika ykkar, þá glöddumst við enn meir vegna Títusar, vegna þess hve hann varð glaður og hve vel þið tókuð á móti honum.
13 Fomos grandemente encorajados por isso. Além de nos sentirmos encorajados, ficamos particularmente contentes de ver Tito alegre porque todos vocês o receberam bem e o tranquilizaram.
14 Ég sagði honum hvernig allt ætti að vera. Ég sagði honum líka hve hreykinn ég væri af ykkur, áður en hann lagði af stað – og ég varð ekki fyrir vonbrigðum með ykkur. Ég hef alltaf sagt ykkur sannleikann og hrós það, sem ég veitti ykkur í áheyrn Títusar, hefur einnig reynst rétt.
14 Eu tinha dito a ele quanto me orgulhava de vocês, e vocês não me decepcionaram. Sempre lhes disse a verdade, e ficou provado que eu tinha razão ao elogiá-los!
15 Kærleikur hans til ykkar er meiri nú en nokkru sinni fyrr, einmitt vegna þess að hann minnist þess hve fús þið voruð að hlusta á orð hans og hve áhugi ykkar og einlægni ristu djúpt.
15 Ele os estima ainda mais quando se lembra de como todos vocês lhe obedeceram e o receberam bem, com temor e profundo respeito.
16 Nú er ég glaður! Nú veit ég að allt er komið í lag okkar á milli. Enn einu sinni get ég sagt: Ég ber fullkomið traust til ykkar.
16 Fico muito feliz por poder ter plena confiança em vocês.

Ler em outra tradução

Comparar com outra

Estude este capítulo no WhatsApp

Peça à IA da Bíblia Fala para explicar 2 Coríntios 7, comparar traduções ou montar um estudo — tudo direto pelo WhatsApp.