1 Coríntios 9
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ (ISL) vs VC
1 Ég er postuli, sendiboði Guðs, og ábyrgur gagnvart honum einum. Ég hef séð Drottin Jesú, konung okkar, með eigin augum og trú ykkar á hann er árangur erfiðis míns fyrir hann.
1 Não sou eu livre? Não sou apóstolo? Não vi Jesus nosso Senhor? Não sois vós minha obra no Senhor?
2 Finnist öðrum ég ekki vera postuli, þá er ég það samt í ykkar augum, því þið hafið gefist Kristi vegna starfs míns.
2 Se para outros não sou apóstolo, ao menos para vós o sou, porque vós sois no Senhor o selo do meu apostolado.
3 Þetta er svar mitt til þeirra sem efast um rétt minn.
3 Esta é a minha defesa contra os que me denigrem.
4 Hef ég kannski engan rétt? Get ég ekki krafist sömu réttinda og hinir postularnir til að njóta gestrisni ykkar?
4 Não temos nós porventura o direito de comer e beber?
5 Ef ég ætti kristna eiginkonu, gæti ég þá ekki tekið hana með mér í ferðir mínar alveg eins og postularnir, bræður Drottins, og Pétur?
5 Acaso não temos nós direito de deixar que nos acompanhe uma mulher irmã, a exemplo dos outros apóstolos e dos irmãos do Senhor e de Cefas?
6 Verðum við Barnabas einir að vinna fyrir okkur, á meðan þið haldið hinum uppi?
6 Ou só eu e Barnabé não temos direito de deixar o trabalho?
7 Hvaða hermaður verður að greiða kostnaðinn við herþjónustuna úr eigin vasa? Hafið þið nokkru sinni heyrt um bónda sem hirðir tún sín en er síðan meinað að nýta heyið til eigin þarfa? Og hvaða sjómaður er ráðinn á bát án þess að fá hlut?
7 Quem, jamais, vai à guerra à sua custa? Quem planta uma vinha e não come do seu fruto? Quem apascenta um rebanho e não se alimenta do leite do rebanho?
8 Hér er ég ekki aðeins að vitna í skoðanir manna um hvað sé rétt, heldur í lög Guðs, því þau segja þetta sama.
8 Trata-se, acaso, de simples norma entre os homens? Ou a lei não diz também o mesmo?
9 Í lögunum, sem Guð birti Móse, segir hann að ekki megi múlbinda uxa sem þreskir korn og meina honum þannig að eta af korninu. Haldið þið að Guð hafi eingöngu verið að hugsa um uxana er hann sagði þetta?
9 Na Lei de Moisés está escrito: Não atarás a boca ao boi que debulha {Dt 25,4}. Acaso Deus tem dó dos bois?
10 Var hann ekki líka með okkur í huga er hann gaf þessi fyrirmæli? Vitaskuld! Hann sagði þetta til þess að sýna að þeir sem vinna, skuli fá borgað fyrir störf sín. Þeir sem plægja og þreskja, ættu að fá hluta uppskerunnar.
10 Não é, na realidade, em atenção a nós que ele diz isto? Sim! É por nós que está escrito. Quem trabalha deve trabalhar com esperança e igualmente quem debulha deve debulhar com esperança de receber a sua parte.
11 Við höfum sáð andlegu sæði í sálir ykkar. Er þá of mikið að fara fram á fæði og klæði að launum?
11 Se entre vós semeamos bens espirituais, será, porventura, demasiada exigência colhermos de vossos bens materiais?
12 Þetta veitið þið öðrum sem predika yfir ykkur, enda ber ykkur að gera slíkt, en ættum við ekki að hafa jafnvel meiri rétt en þeir? Samt höfum við aldrei krafist þess, heldur sjáum við fyrir þörfum okkar án hjálpar ykkar. Við höfum aldrei krafist launa, af ótta við að ef við gerðum það þá hefðuð þið minni áhuga á boðskap okkar um Krist.
12 Se outros se arrogam este direito sobre vós, não o temos muito mais? Entretanto, não temos feito uso deste direito: sofremos tudo para não pôr obstáculo algum ao Evangelho de Cristo.
13 Vitið þið ekki að Guð lagði svo fyrir að þeir sem vinna við musterið, skuli njóta hluta þeirra gjafa sem berast til musterisins? Og þeir sem starfa við fórnaraltarið fá hluta þess matar sem fórnað er Guði?
13 Não sabeis que os ministros do culto vivem do culto, e que os que servem ao altar participam do altar?
14 Á sama hátt hefur Drottinn gefið fyrirmæli um að þeir sem flytja gleðiboðskapinn, skuli hljóta lífsviðurværi sitt frá þeim sem við honum taka.
14 Assim também ordenou o Senhor que os que anunciam o Evangelho vivam do Evangelho.
15 Samt hef ég aldrei beðið ykkur um eina einustu krónu, hvað þá meira. Þetta skrifa ég ekki til að gefa í skyn að ég hafi slíkt í hyggju. Satt að segja vildi ég frekar deyja úr hungri en að verða af þeirri ánægju, sem ég fæ við að flytja ykkur gleðiboðskapinn án endurgjalds.
15 Mas não tenho usado de nenhum desses direitos; e nem escrevo isto para reclamá-los. Preferiria morrer a... Mas ninguém me tirará este título de glória.
16 Það eitt að flytja gleðiboðskapinn er mér ekkert hrósunarefni. Ég gæti ekki hætt þótt ég vildi. Þá yrði ég ófær til alls. Ég væri búinn að vera ef ég hætti að boða Guðs orð.
16 Anunciar o Evangelho não é glória para mim; é uma obrigação que se me impõe. Ai de mim, se eu não anunciar o Evangelho!
17 Ef ég væri í sjálfboðavinnu af eigin frumkvæði og vilja þá mundi Guð launa mér ríkulega, en þannig er því ekki farið. Því að Guð hefur kallað mig til þessa verks, falið mér þetta trúnaðarstarf, og ég á hreint ekkert val.
17 Se o fizesse de minha iniciativa, mereceria recompensa. Se o faço independentemente de minha vontade, é uma missão que me foi imposta.
18 Fyrst svo er, hvað hlýt ég þá að launum? Jú, þá gleði og fögnuð sem fylgir því að flytja boðskapinn öðrum að kostnaðarlausu og án þess að krefjast þess sem mér ber.
18 Então em que consiste a minha recompensa? Em que, na pregação do Evangelho, o anuncio gratuitamente, sem usar do direito que esta pregação me confere.
19 Það hefur einnig þann mikla kost að ég er engum háður vegna launanna, þó hef ég af fúsum og frjálsum vilja gerst allra þjónn, svo ég geti unnið þá fyrir Krist.
19 Embora livre de sujeição de qualquer pessoa, eu me fiz servo de todos para ganhar o maior número possível.
20 Þegar ég er með Gyðingum er ég sem einn þeirra, svo þeir vilji hlusta á boðskapinn og ég geti leitt þá til Krists. Þegar ég er meðal þeirra sem ekki eru Gyðingar, en fylgja þó siðum þeirra og venju, þá deili ég ekki við þá, jafnvel þótt ég sé þeim ekki sammála, því ég vil geta hjálpað þeim.
20 Para os judeus fiz-me judeu, a fim de ganhar os judeus. Para os que estão debaixo da lei, fiz-me como se eu estivesse debaixo da lei, embora o não esteja, a fim de ganhar aqueles que estão debaixo da lei.
21 Þegar ég er meðal heiðingja er ég þeim sammála að svo miklu leyti sem ég get, þó auðvitað verð ég sem kristinn maður að gera alltaf það sem rétt er. Þannig vinn ég traust þeirra og þá get ég líka hjálpað þeim.
21 Para os que não têm lei, fiz-me como se eu não tivesse lei, ainda que eu não esteja isento da lei de Deus - porquanto estou sob a lei de Cristo -, a fim de ganhar os que não têm lei.
22 Þegar ég er með þeim sem viðkvæmir eru og óstyrkir, þá læt ég ógert að finna að við þá, til þess að ég geti orðið þeim til góðs. Hvernig sem maðurinn er þá reyni ég alltaf að vera honum sammála að einhverju leyti, til að ég geti nálgast hann, sagt honum frá Kristi og Kristur frelsi hann.
22 Fiz-me fraco com os fracos, a fim de ganhar os fracos. Fiz-me tudo para todos, a fim de salvar a todos.
23 Þetta geri ég til þess að ég geti komið gleðiboðskapnum að og einnig vegna þeirra blessunar er ég sjálfur hlýt við að sjá fólk koma til Krists.
23 E tudo isso faço por causa do Evangelho, para dele me fazer participante.
24 Í kapphlaupi hlaupa allir en aðeins einn fær gullið. Hlaupið þannig að þið getið sigrað!
24 Nas corridas de um estádio, todos correm, mas bem sabeis que um só recebe o prêmio. Correi, pois, de tal maneira que o consigais.
25 Til að vinna keppni verður þú að neita þér um ýmislegt, sem hindrað gæti árangur þinn. Íþróttamaður leggur hart að sér, til þess eins að vinna fánýtan verðlaunagrip, en við til að vinna himnesk laun, sem vara að eilífu.
25 Todos os atletas se impõem a si muitas privações; e o fazem para alcançar uma coroa corruptível. Nós o fazemos por uma coroa incorruptível.
26 Ég stefni því beint á markið og hvert skref færir mig nær sigrinum – ég keppi til sigurs! Ég er ekki að þessu til að leika mér eða eyða tímanum.
26 Assim, eu corro, mas não sem rumo certo. Dou golpes, mas não no ar.
27 Ég leik sjálfan mig hart eins og íþróttamaður. Ég aga mig og þjálfa til þess að ég, sem hef lagt öðrum lífsreglurnar, verði ekki sjálfur dæmdur úr leik!
27 Ao contrário, castigo o meu corpo e o mantenho em servidão, de medo de vir eu mesmo a ser excluído depois de eu ter pregado aos outros.
Atalhos do teclado
- Capítulo anterior←
- Próximo capítulo→
- Versículo anteriork
- Próximo versículoj
- Limpar seleçãoEsc
- Esta ajuda?
Estude este capítulo no WhatsApp
Peça à IA da Bíblia Fala para explicar 1 Coríntios 9, comparar traduções ou montar um estudo — tudo direto pelo WhatsApp.