Salmos 82

Icelandic: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og SálmarnirTM (New Testament+) (ISL_BIB)

1 Guð stígur fram á himnum. Hann segir: „Réttur er settur!“ Síðan birtir hann úrskurð sinn gegn dómurum á jörðu.

2 Hve lengi ætlið þið, dómarar, að sniðganga réttlætið? Hve lengi ætlið þið að draga taum hinna ranglátu?

3 Kveðið upp réttláta dóma í málum hinna fátæku og föðurlausu, bágstöddu og þjáðu,

4 Losið fátæklingana úr klóm hinna guðlausu!

5 Þið eruð sljóir og fáfróðir og blindir. Þess vegna riðar þjóðfélagið til falls.

6 Ég hef kallað ykkur „guði“ og „syni hins hæsta“,

7 en í raun og veru eruð þið aðeins dauðlegir menn. Þið munuð falla rétt eins og aðrir af höfðingjunum.

8 Rís þú upp, ó Guð, og dæmdu jörðina. Þú hefur hana á valdi þínu og þjóðirnar eru í þinni hendi.

Ler em outra tradução

Comparar lado a lado

Estude este capítulo no WhatsApp

Peça à IA da Bíblia Fala para explicar Salmos 82, comparar traduções ou montar um estudo — tudo direto pelo WhatsApp.