Salmos 3

Icelandic: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og SálmarnirTM (New Testament+) (ISL_BIB)

2 Ó, Drottinn, það eru svo margir á móti mér, svo margir sem gera uppreisn gegn mér.

3 Menn segja að Guð muni alls ekki hjálpa mér.

4 En, Drottinn, þú ert skjöldur minn, sæmd mín og von. Þú lætur mig bera höfuðið hátt, þrátt fyrir allt.

5 Ég hrópaði til Drottins og hann svaraði mér frá musteri sínu í Jerúsalem.

6 Þá lagðist ég fyrir og sofnaði í friði. Síðar vaknaði ég öruggur, því að Drottinn gætir mín.

7 Nú er ég óhræddur, jafnvel þótt tíu þúsund óvinir umkringi mig!

8 Ég mun hrópa til Drottins: „Drottinn, rís þú upp! Bjargaðu mér, þú Guð minn!“ Og hann mun slá óvini mína og brjóta tennur illvirkjanna. Hjálpin kemur frá Guði. Blessun hans hvílir yfir þjóð hans.

Ler em outra tradução

Comparar lado a lado

Estude este capítulo no WhatsApp

Peça à IA da Bíblia Fala para explicar Salmos 3, comparar traduções ou montar um estudo — tudo direto pelo WhatsApp.