Salmos 126

Icelandic: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og SálmarnirTM (New Testament+) (ISL_BIB)

1 Þegar Drottinn flutti þjóð sína aftur til Jerúsalem, heim úr herleiðingunni, þá héldum við að okkur væri að dreyma!

2 Við sungum og hlógum af gleði. Þá sögðu heiðnu þjóðirnar: „Drottinn hefur gert ótrúlega hluti fyrir þá!“

3 Já, undursamlega hluti! Hvílíkt undur! Hvílík gleði!

4 Hresstu okkur nú Drottinn, já gefðu okkur kröftuga gróðrarskúr!

5 Þeir sem sá með tárum skulu uppskera með gleðisöng.

6 Grátandi bera þeir sæðið til sáningar, en syngjandi koma þeir aftur og bera kornbindin heim!

Ler em outra tradução

Comparar lado a lado

Estude este capítulo no WhatsApp

Peça à IA da Bíblia Fala para explicar Salmos 126, comparar traduções ou montar um estudo — tudo direto pelo WhatsApp.