Salmos 114

Icelandic: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og SálmarnirTM (New Testament+) (ISL_BIB)

1 Í árdaga, þegar Ísraelsmenn flúðu Egyptaland, land hinnar framandi tungu,

2 varð Júda og Ísrael bústaður Guðs og ríki hans.

3 Hafið rauða sá þá koma og hopaði. Og áin Jórdan, hún stöðvaðist svo að þeir gátu gengið yfir.

4 Fjöllin hoppuðu eins og hrútar og hæðirnar sem lömb!

5 Hvað olli því, þú rauða haf, að þú hopaðir til beggja hliða? Og hvers vegna, áin Jórdan, stöðvaðist rennsli þitt?

6 Og þið fjöll, hvers vegna hoppið þið eins og hrútar og þið hæðir sem lömb?

7 Nötra þú jörð frammi fyrir augliti Drottins, Guðs Jakobs,

8 því að hann lét uppsprettu opnast á klettinum.

Ler em outra tradução

Comparar lado a lado

Estude este capítulo no WhatsApp

Peça à IA da Bíblia Fala para explicar Salmos 114, comparar traduções ou montar um estudo — tudo direto pelo WhatsApp.